DITTÓ.....Tilverupælingar og lífsbull Gunnu Möggu.

GUÐ gefi mér ÆÐRULEYSI til að sætta mig við, það sem ég fæ ekki breytt........ KJARK til að breyta því sem ég get breytt..... og VIT til að greina þar á milli.

Færslur: 2009 Desember

08.12.2009 22:10

Farin í stríð við aukaverkanir.... :/

Eins og þið sem þekkið mig vitið þá lenti ég í veikindum fyrir einu og hálfu ári síðan, eftir þau veikindi var ég sett á lyf (fleiri en eitt) sem mér var sagt að ég yrði að nota daglega það sem ég ætti eftir ólifað...emoticon  En þessum lyfjum fylgja ömurlegar aukaverkanir, alla vega að mínu mati.... og það er þyngdaraukning, skiptir engu hvort ég borða eða ekki arggg..... emoticon þetta fer í taugarnar á mér. Þegar maður hefur allt sitt líf reynt að passa upp á vigtina, en samt leyft sér að njóta þess að vera til, þá eru svona aukaverkanir ekki velkomnar..... Þannig að ég er farin í stríð við aukaverkanir, hvernig svo sem ég fer að því, það á eftir að koma í ljós.... En nú er nóg komið af volæði í bili hehehe.... emoticon en stríð verður það!!!

Munið elskurnar að koma fram við aðra eins og þið viljið láta koma fram við ykkur..


Þangað til næst elskurnar, kossar og knús....... emoticon emoticon

07.12.2009 20:38

Þreytta ég.... ;o)

Jæja þetta varð nú örlítið lengri vinnudagur en lagt var upp með, en bara besta mál, verst að maður verður svo agalega þreyttur hehehe..... emoticon eftir mína vinnu fór ég og leysti Helgu Rut af svo hún kæmist á fund sem hún vissi ekki af fyrr en á síðustu stundu. Það kemst lítið í verk heima fyrir eftir svona daga emoticon . En ég er alla vega búin að finna allar jólaseríurnar og þá er bara að koma þeim upp, ætla nú að reyna að drullast í það áður en ég lognast út af í kvöld.... Ég veit að mér líður mikið betur þegar ég er búin að koma ljósunum upp og kveikja á þeim, svo yndislegt svona í skammdeginu.

Það er nú svona yfir höfuð mikið rólegra í vinnunni núna þar sem það eru próf í gangi, en það er alltaf hægt að finna sér eitthvað að gera, ég hef alla vega alltaf meira en nóg að gera emoticon .


Það styttist í að Vilborg Hrefna og Darrinn minn komi í bæinn, þau koma þann 15. mikið verður nú gott að fá að knúsa þau aðeins... emoticon

Og hin krílin mín fæ ég að sjá og knúsa þann 20. þegar ég fýg austur á "hjara veraldar" til þeirra... emoticon

Ætla ekki að bulla meira hér í þetta sinn, erfitt að koma sér af stað hérna aftur hehe....

Þangað til næst elskurnar, kossar og knús............ emoticon emoticon

PS: Ég sé að ég þarf að fara að laga linkana mína hérna á síðunni, fullt af óvirkum linkum þar sem fólk hefur skipt út síðunum sínum.... fer í það mjög fljótlega....

06.12.2009 11:30

Jú jú... mín er á lífi enn hehehe.... ;o)

Vá það eru að verða komið 1 ár síðan ég bloggaði hérna síðast, þetta er sko ekki nokkur frammistaða.... Nú þykist ég ætla að rífa þessa síðu mína upp aftur (einu sinni enn hehehe....) En það er sko ýmislegt búið að gerast á þessu 1 ári í mínu lífi. En svona til að stikla á stóru þá er ég farin að vinna í HR tækniskólanum upp á Höfða, verð þar þangað til nú um áramótin, þá flytjum við í nýja skólann í Vatnsmýrinni.... emoticon

Og haldið þið að mín sé ekki bara búin að kaupa sér íbúð.. ú yeah... emoticon Flyt í hana um mánaðarmótin janúar - febrúar, keypti mér litla íbúð upp í Grafarvogi, hlakkar sko ekkert smá til að flytja þangað. Hún hentar mér flott þar sem ég er orðin einbúi, litla barnið mitt leigði sér íbúð og fór að búa þar núna um síðustu mánaðarmót... Þannig að allir ungarnir mínir eru flognir úr hreiðrinu og farin að sjá um sig sjálf, ekkert smá stolt af þessum börnum mínum, þau eru sko langflottust.... emoticon

Karen Rós og Vilborg Hrefna eru báðar fluttar alla leið á "hjara veraldar"... emoticon Egilsstaði, þannig að öll 3 barnabörnin mín eru búsett þar núna.... En við Helga Rut erum búnar að kaupa okkur flug austur til þeirra um jólin, ætlum að vera þar í viku, 20 - 27 des... Hörður Óli er fluttur heim til Íslands aftur þannig að þau eru þó öll hér á landi núna.... emoticon

En nú þykist ég ætla að láta hendur standa fram úr ermum og jólast aðeins.... veitir ekki af, held ég hafi aldrei verið svona sein í öllu sem viðkemur jólunum.... emoticon

Ekki gleyma að vera góð við hvert annað, það skilar sér svo margfalt tilbaka.......

Þangað til næst elskurnar, kossar og knús............ emoticon emoticon

  • 1
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 4
Flettingar í gær: 22
Gestir í gær: 6
Samtals flettingar: 97896
Samtals gestir: 28844
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 20:51:35
clockhere

Málshættir vikunnar!!

Örlögin eru ekki tilviljunum háð, þau eru val! ;o)
Stjórnir þú ekki lífi þínu, mun einhver annar gera það! ;o)

Vert að hafa í huga!

Ef við höfum ekki eiginleika til að vera hreinskilin við okkur sjálf þá komumst við ekki út úr og í gegnum vandamálin!

Ég

MSN netfang:

eldon82@hotmail.com

Tenglar